9.10.2008 | 11:51
Hádegisfyrirlestri lokið
Málfunda- og umræðufélagið Gladius þakka öllum þeim sem komu og hlýddu á fyrirlestur um Réttarhöldin yfir Jesú í gær. Milli 40-50 manns mættu í sal 101 í Lögbergi til þess að hlusta á þennan fyrirlestur sem fluttur var af Davíð Erni Sveinbjörnssyni, meistaranema við lagadeild Háskóla Íslands.
Ákveðið hefur verið að setja glærur sem fyrirlesari studdist við inn á netið og má nálgast þær hérna.
Myndir frá fyrirlestrinum verða settar inn á þessa síðu á næstunni.
Skrár tengdar þessari bloggfærslu: